7.10.2010 | 12:38
piparúði
piparúði notar lögreglan fyrir t.d.árasir álögregluna og fl en ég ætla að segja ykkur hvað piparuði er og hversu hættulegur hann er.
Oft er talað um "Mace" þegar piparúði er nefndur en það er fyrirtæki sem framleiðir þessa vöru. Lögregla hefur notað piparúða í áratugi í stað skotvopna eða annarra i stað að nota byssur og fl.
til þess að hafa hemil á fólki sem ekki bregst við fyrirmælum. Í sumum löndum getur almenningur keypt piparúða, þó ekki á Íslandi.
Til eru margar tegundir af piparúða og er innihald þeirra nokkuð mismunandi. Í þeim piparúða sem oftast er notaður er virka efnið capsæsín (e. capsaicin) (8-Methyl-N-vanillyl-trans-6-nonenamide). Það er dregið út úr piparávöxtum á borð við chile-pipar og cayenne-pipar, og síðan er því blandað meðal annars við própýlenglýkól í styrkleikanum 0apsæsín er það sem kallað er tárvekjandi (e. lachrymator) en svo nefnist flokkur efna sem veldur ertingu í augum og slímhúð. Einnig getur það valdið sviða og ertingu á venjulegri húð ef piparúðinn er sterkur. Það er óhemju sársaukafullt að fá piparúða í andlitið en það er sem betur fer ekki að sama skapi hættulegt. Hluti af þjálfun lögreglumanna víða um heim felst í því að láta þá reyna hvernig það er að fá piparúða framan í sig. Fólk sem hefur astma ætti þó sérstaklega að varast piparúða enda getur allt sem fer niður í lungun kallað fram astmakast. Ef astmasjúklingar fá piparúða framan í sig ættu þeir að leita læknis sem fyrst. Yfirleitt er ekki talið samkvæmt heimildum okkar að piparúði einn og sér geti valdið dauðsföllum en slíkt er þó hugsanlegt þegar fólk er með astma.
Fyrir þann sem fær piparúða í andlitið er mikilvægt að koma sér sem fyrst af vettvangi til að sem minnst af úðanum komist í snertingu við hann. Miklu skiptir að nudda vökvanum ekki í andlit eða augu. Þá þarf að fjarlæga föt sem eru menguð og þvo hendurnar vel. Einnig er gott að depla augunum ótt og títt til þess að auka táramyndun þannig að efnið skolist burt. Ef hægt er að komast í vatn þá ætti að skola augun vel til þess að ýta olíukennda vökvanum hreinlega úr augunum. Þá hefur reynst vel að nota barnasjampó til þess að þvo vökvann úr andlitinu og augunum. Engin töfralausn er til við einkennunum og verður fólk hreinlega að þola óþægindin sem fylgja úðanum. Eftir um 30-40 mínútur eru verstu einkennin horfin og eftir tvo til þrjá daga eru menn algjörlega einkennalausir.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.